Skilmálar

Vöruskilmálar og eignarréttur


Básaleigjandi er að öllu leyti ábyrgur fyrir sínum bás og
vörunum sem í honum eru. Óheimilt er með öllu að selja
falsaðar, ólöglegar eða skaðlegar/hættulegar vörur í Evey.
Vörur sem verslun telur ekki við hæfi geta verið fjarlægðar
af starfsmönnum án viðvörunar.
Við reynum eftir fremsta megni að hafa góðar flíkur í
versluninni okkar, Evey áskilur sér rétt að hafna uppsetningu
eða fjarlægja vöru úr sölu meðan á sölutímabili stendur ef
starfsfólk telur vöru ekki mæta kröfum versluninnar. Þetta á
við um ástand vöru, hvort varan sé hrein, heilleg, slitin, ónýt,
illa lyktandi eða gölluð að einhverju leyti. Auglýsingar,
nafnspjöld eða annarskonar markaðssetning er ekki leyfileg
í sölurými Evey nema með samþykki.
Aðeins fatnaður, skór og fylgihlutir t.d. veski, sólgleraugu,
úr, skart eru leyfðir. Ásamt ilmvötnum og sambærilegum
vörum í búðinni. Nytjamunir eins og borðspil, dót, raftæki,
húsgögn eða skraut er með öllu óheimilt og verður fjarlægt.
Ath við leyfum ekki endursölu á notuðum nærfötum.
Vara í Evey er keypt í því ástandi sem hún er í, það er á
ábyrgð kaupanda að skoða ástand vöru áður en hún er
keypt. Starfsfólk hefur ekki heimild til að taka við vöru eftir
að hún hefur verið keypt, gefa afslátt eða breyta verði. Ekki
er hægt að skila vörum í Evey undir neinum
kringumstæðum.
 
Verð og þóknun 
Verðin sem gefin eru upp á vefsíðunni okkar eru með
virðisaukaskatti. Evey tekur 25% þóknun af heildarsölu
hvers leigjanda, sem verður dregin frá söluhagnaði áður en
greiðsla til leigjanda er framkvæmd.

Afbókanir 
Ef þú ákveður að afpanta básinn þinn, getur þú fengið
endurgreiðslu ef þú gerir það innan 14 daga fyrir bókun. Til
þess að nýta þessa endurgreiðslurétt, þarftu að mæta í
verslun okkar eða senda tölvupóst
á eveythriftshop@gmail.com  Ef þú afpantar með minna en
14 daga fyrirvara fyrir fyrsta dag leigutímabils er ekki hægt
að fá endurgreitt.

Ef engar vörur eru komnar í verslun kl.16 á fyrsta degi
básaleigu og básaleigjandi hefur ekki haft samband, þá er
Evey heimilt að endurleigja básinn.
 
Sjálfstæður rekstur
Ef þú ætlar að reka verslun í básnum og selja vörur frá VSK-
skráðu fyrirtæki, þarf að tilkynna það við bókun. Þú ert
ábyrgur fyrir því að skila réttum upplýsingum til
skattyfirvalda og gera viðeigandi ráðstafanir.

Viðskiptavinir sem selja vörur í atvinnuskyni er ekki heimilt
að bóka fleiri en eitt sölurými ef um sölu á nýjum vörum er
að ræða, aðilar sem selja nýjar vörur í atvinnuskyni bera
ábyrgð á því að gefa upp réttar upplýsingar til skatts. Taka
þarf fram við bókun ef selja á vörur frá VSK-skráðu fyrirtæki.
Verði viðskiptavinur uppvís að því að brjóta þessa skilmála
getur samningi hans verið rift og sölurými tæmt án
endurgreiðslu á leiguverði.
 
Uppsetning og ábyrgð 

Þú getur sett upp básinn þinn klukkutíma fyrir lokun daginn
áður en leigutímabil hefst eða á bókunardegi samkvæmt
opnunartíma. Vörur þurfa að vera merktar með verðmiðum
sem eru til staðar frá Evey. 
Ef varan þín er sett upp í kerfinu án mynd eða léleg lýsing er
á vörunni og miðinn dettur af þá er líklegt að hún endi í
tapað/fundið slánni, þess vegna er mikilvægt að skrá vörur
með réttu nafni, stærð og mynd.

 
Þjófavarnir 


Við notum öryggismyndavélar og fylgjumst með
búðarþjófnaði og niðurtekt bása. Evey ber ekki ábyrgð á
stolnum, týndum né skemmdum vörum. Verði vörur fyrir
vatns- eða eldstjóni í tilfelli af eldsvoða eða vatnsskaða er
Evey ekki bótaskyld. Innbústrygging básaleigjanda bætir
hugsanlega bruna/vatnsskaða eða þjófnað.
– Evey mælir með að básaleigjandi hafi samband við sitt
tryggingafélag til að fá frekari upplýsingar. 
 
Breyting á verðmiðum/Afsláttur á bás
Ef þú vilt breyta verði á vörum í básnum á meðan á
leigutímabili stendur, þarf að koma sem fyrst í verslun og fá
nýjan merkimiða til að setja á vöruna. 
Þegar breytir verði á vöru inn á “mitt Evey” uppfærist það
strax í sölukerfinu og selst varan samkvæmt því, ef það er
misræmi á verðmiða og í kassakerfinu reynum við eftir bestu
getu að leiðrétta verð en berum enga ábyrgð ef varan selst
á “röngu” verði.

Ef þú vilt veita afslátt á vörum í básnum, getur þú haft
samband við starfsfólk Evey og óskað eftir því að afsláttur
verði settur inn í kerfið. Afsláttur getur verið frá 10-90%

Framlengja básaleigu
Ef að þú ert með bás á leigu og vilt framlengja tímabilið
annað hvort á þeim bás sem þú ert þegar með (ef að sá bás
er laus) eða vilt leigja nýjan bás. Þarft þú að bóka nýtt
leigutímabil í „Bóka Bás“. Ef að sama básanúmer er fyrir
valinu þarf ekki að skipta um merkimiða, hins vegar ef nýtt
básanúmer er valið þarf að setja nýja verðmiða á vörurnar
sem tilheyra þeim bás. Viðkomandi þarf að óska eftir því að
starfsfólk færi vörurnar í tölvukerfinu úr gömlu básleigunni á
nýju básleiguna áður en að bása leigjandi óskar útgreiðslu á
seldum vörum. 
 
Í lok leigutímans
Í lok básaleigu, á síðasta degi sölu, kemur þú að ganga frá
básnum þínum og sækja vörur sem eftir eru. Mán-fös kemur
þú í síðasta lagi klukkan 17:00 en klukkan 15:00 um helgar.
Næsti básleigjandi á rétt á básnum klukkustund fyrir lokun
daginn áður en hans básaleiga hefst.
Mikilvægt er að þegar þú kemur að þú gefir þig fram við
starfsmann í afgreiðslu og látir vita að þú sért að tæma bás.
Vinsamlegast hafið skilríki meðferðis. Starfsfólk leiðbeinir
básleigjanda um að sækja slá, setja vörur sínar á hana og
koma með slána á afgreiðsluborðið, þar sem starfsfólk fer
yfir verðmiða á vörunum og fjarlægir þjófavarnir. 
Komist þú ekki á tilsettum tíma er hægt að semja við
starfsfólk Evey fyrir klukkan 16 daginn sem básaleigu lýkur,
um að tæma bás fyrir leigjanda gegn 3000kr gjaldi. Hægt er
að sækja um þessa þjónustu með því að hringja í verslun

okkar í síma 847-1585 eða senda tölvupóst
á eveythriftshop@gmail.com
Ef ekkert er um samið, tekur starfsfólk Evey niður básinn
gegn 5000kr gjaldi. 
Starfsfólk geymir vörurnar í 7 daga að hámarki en 1.000
króna geymslugjald er innheimt fyrir hvern dag sem vörurnar
eru í geymslu hjá Evey. Eftir þessa 7 daga eru vörurnar í
eigu Evey. Sæki básaleigjandi ekki vörurnar sínar verða
þessi gjöld dregin af söluhagnaði áður en hann er greiddur
til básaleiganda.
Ef vörur eru ekki sóttar innan þess ramma teljast þær eign
Evey sem selur þær áfram og gefur ágóða söluhagnaðar til
góðgerðarmála. 
Ef þú vilt gefa óseldar vörur í góðgerðarstarfsemi þá þarft þú
að senda okkur tölvupóst fyrir lok básaleigu og tökum við
niður básinn þér að kostnaðarlausu.
 
Útborgun á söluhagnaði
Þegar básaleigu er lokið og þú hefur sótt vörurnar þínar sem
eftir eru, ferð þú á útborgunar lista og færð greitt eftir 5-10
virka daga, ef það er ekki greitt út á föstudegi er greitt á
mánudegi. Mikilvægt er að skrá bankaupplýsingar inn á "Mitt
Evey" svo hægt sé að greiða út söluhagnað. Eingöngu
verður greitt út með millifærslu í heimabanka. Básaleigjandi
með Almenna þjónustu greiðir 25% þóknun.

Tapað/Fundið
Ef varan þín er sett upp í kerfinu án mynd eða léleg lýsing er
á vörunni og miðinn dettur af þá er líklegt að hún endi í

tapað/fundið slánni, þess vegna er mikilvægt að skrá vörur
með réttu nafni, stærð og mynd.
Ef að vara finnst án merkimiða þá er hún sett á
„tapað/fundið“ svæði Evey. Básaleigjendur geta alltaf fengið
að skoða svæðið ef vara týnist á meðan básaleigu stendur,
við geymum vörur án merkimiða í „tapað/fundið“ í 14 daga
eftir það telst hún eign Evey. Ef starfsfólk rekst á vöru sem
er með merkimiða eftir að básaleigu er lokið sendum við
viðkomandi tölvupóst, þá er hægt að sækja vöruna innan 7
daga, eftir það telst hún eign Evey og verður varan seld og
söluhagnaður fer til góðgerðamála.
 
Persónuvernd
Hjá Evey er friðhelgi viðskiptavina í fyrirrúmi.
Persónuupplýsingar eru aldrei miðlaðar til þriðja aðila nema
slíkt sé nauðsynlegt til að ljúka viðskiptum. Með því að
samþykkja þessa skilmála skráist þú sjálfkrafa á póstlista
Evey.

Skilmálar netverslunar 


1. Almenn ákvæði

Þessir skilmálar gilda um öll viðskipti í gegnum
eveyverslun.is. Með því að staðfesta pöntun samþykkir
kaupandi þessa skilmála. Seljandi er Eveyverslun, kaupandi
er sá einstaklingur sem skráður er aðili að viðskiptum.


2. Skilaréttur og afpöntun

Vegna eðlis vara í Eveyverslun (t.d. tískufatnaður, fylgihlutir,
skart í takmörkuðu upplagi) er ekki boðið upp á skilarétt,
skipti eða endurgreiðslu vegna þess að kaupandi skipti um

skoðun, valdi ranga stærð, rangan lit eða einfaldlega vill
ekki vöruna lengur.
Allar pantanir eru endanlegar. Kaupandi samþykkir að
enginn réttur er til skila eða endurgreiðslu nema lagaleg
skylda sé til staðar.


3. Gölluð vara og lögbundnar úrbætur

Ef vara reynist gölluð eða röng (samkvæmt lögum um
neytendakaup) skal kaupandi hafa samband við þjónustuver
innan hæfilegs tíma, svo seljandi geti boðið viðgerð, skipti
eða aðrar lögboðnar úrbætur.
Aðeins ef ekki er hægt að veita úrbætur eða skipti getur
kaupandi átt rétt á afslætti eða riftun með endurgreiðslu
– samkvæmt lögum.
Seljandi veitir enga viðbótarendurgreiðslu eða frjálsar
úrbætur utan þess sem lög gera ráð fyrir.


4. Afhending

Eveyverslun afhendir vörur með flutningsaðilum innan lands.
Seljandi ber ekki ábyrgð á seinkunum eða tjóni sem verður
eftir að vara er afhent flutningsaðila. Kaupandi ber ábyrgð á
að veita réttar sendingarupplýsingar.


5. Greiðsla

Kaupandi greiðir með greiðsluleiðum sem birtar eru á
síðunni (kort, millifærsla, Netgíró). Allar pantanir eru
greiddar að fullu fyrir afhendingu.


6. Persónuvernd

Upplýsingar um kaupanda eru unnar samkvæmt
persónuverndarstefnu Eveyverslunar. Þær eru aðeins
notaðar til að vinna úr pöntunum og til að veita þjónustu
nema kaupandi gefi sérstakt samþykki fyrir öðru.


7. Lögsaga og ágreiningur

Komi upp ágreiningur sem ekki næst að leysa milli aðila, má
vísa honum til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða
íslenskra dómstóla. Um skilmálana og viðskiptin gilda
íslensk lög.


8. Breytingar á skilmálum

Eveyverslun áskilur sér rétt til að breyta skilmálum hvenær
sem er. Breytingar gilda frá birtingu á vefnum og eiga við ný
viðskipti.


Samstarf
Við erum opin fyrir samstörfum, endilega sendið tölvupóst
á eveythriftshop@gmail.com